Málþingið var haldið á Hilton hótel og bar heitið Fjórða vaktin. Við fengum það tækifæri að vinna með Umhyggju – samtökum sem styðja við langveik börn og fjölskyldur þeirra – í hlutverki kynna. Ásamt okkur voru fyrirlesarar bæði fagfólk og foreldrar.
Þó vaktirnar líti ólíkt út eiga þær það oft sameiginlegt að það er ómannekjulega mikið álag á þeim. Vonandi með fræðslu og meiri vitund verða breytingar – foreldrar mæta meiri skilningi, fá betri stuðning og þjónusta verður sveigjanlegri.
Því hver græðir á því að foreldrar séu komnir í örmögnun?
















